Atvinnumaðurinn til KA

Bjarni Ófeigur Valdimarsson í leik með Minden í vetur.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson í leik með Minden í vetur. Ljósmynd/Minden

Handknattleiksmaðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson mun ganga til liðs við KA frá þýska liðinu Minden í sumar.

Bjarni, sem er 25 ára gamall, skrifar undir þriggja ára samning við Akureyrarfélagið.

Bjarni hefur verið hjá Minden undanfarið ár en hann gerði garðinn frægan með sænska liðinu Skövde fyrir það.

Var Bjarni kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á Evrópumótinu í Ungverjalandi árið 2022 þegar Ísland hafnaði í sjötta sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert