Bosníumaðurinn áfram í Eyjum

Petar Jokanovic í leik með ÍBV gegn Haukum í síðustu …
Petar Jokanovic í leik með ÍBV gegn Haukum í síðustu viku. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Bosníski handknattleiksmarkvörðurinn Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV.

Jokanovic gekk til liðs ÍBV sumarið 2019 og er því á sínu fimmta tímabili í Vestmannaeyjum.

Á síðasta ári varð hann Íslandsmeistari með ÍBV auk þess að verða bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili í mars árið 2020.

ÍBV á fyrir höndum undanúrslitaeinvígi gegn deildarmeisturum FH í úrslitakeppni Íslandsmótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert