Íslendingalið Skara mátti sætta sig við tap fyrir Höör, 30:27, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar um sænska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í kvöld.
Leikurinn fór fram í Höör og mætast liðin í öðrum leik í Skara næstkomandi sunnudag.
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Skara og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði þrjú.