Þórir í gífurlega sterkum riðli

Þórir Hergeirsson, þjálfari Noregs.
Þórir Hergeirsson, þjálfari Noregs. AFP/Jonathan Nackstrand

Norska kvennalandsliðið í handknattleik, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, verður í gífurlega sterkum riðli á Ólympíuleikunum í París í sumar. 

Noregur verður með Danmörku og Svíþjóð í A-riðli keppninnar en þau höfnuðu í þremur af fjórum efstu sætunum á heimsmeistaramótinu sem fram fór undir lok síðasta árs. 

Einnig verða Slóvenía, Suður-Kórea og Þýskaland með Norðurlöndunum í riðli. Heimsmeistarar Frakka verða þá í B-riðli ásamt Ungverjalandi, Hollandi, Spáni, Brasilíu og Angólu. 

Fjögur efstu lið riðlanna beggja fara áfram í átta liða úrslit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert