Íslenski landsliðmaðurinn Hörður Magnússon er genginn til liðs við CSKA Moskvu. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins rétt í þessu.
Hörður verður því fjórði Íslendingurinn sem spilar í rússnesku deildinni, en fyrir eru þeir Ragnar Sigurðsson, Björn Bergman Sigurðarson og Sverrir Ingi Ingason sem eru allir samningsbundnir Rostov.