Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar jafnaði markamet goðsagnarinnar Pelé fyrir brasilíska landsliðið er hann gerði mark liðsins gegn Króatíu í átta liða úrslitum HM í fótbolta í Katar í kvöld.
Neymar kom Brasilíu yfir í framlengingu, en markið dugði skammt þar sem Króatía jafnaði og vann síðan í vítakeppni.
Neymar hefur nú skorað 77 mörk í brasilísku landsliðstreyjunni, eins og Pelé. Sá síðarnefndi, sem varð heimsmeistari með Brasilíu 1958, 1962 og 1970, er sem stendur á spítala í heimalandinu að glíma við sýkingu í öndunarfærum og krabbamein.