Ólafur Gústafsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik í viðureigninni við Frakka í milliriðlakeppni HM í handknattleik í Lanxess-Arena í kvöld. Ólafur tekur við fyrirliðastöðunni af Aroni Pálmarssyni sem meiddist í leiknum við Þjóðverja í gærkvöld og verður ekki meira með íslenska liðinu í keppninni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur er fyrirliði A-landsliðsins í handknattleik. Hann leikur í kvöld sinn 38. landsleik.
Leikur Íslands og Frakklands hefst klukkan 19.30 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.