Ásynjur Skautafélags Akureyrar áttu ekki í neinum vandræðum með Björninn í Íslandsmóti kvenna í íshokk í kvöld, því Ásynjur unnu leik liðanna sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri, 5:0.
Linda Sveinsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Ásynjur og þær Jónína Guðbjartsdóttir, Guðrún Blöndal og Silvía Björgvinsdóttir eitt mark hver.
Þetta var aðeins annar leikurinn í Íslandsmóti kvenna í íshokkí á þessari leiktíð, en í fyrsta leik mótsins valtaði Björninn yfir SR, 10:1.