Björninn vann 8:2 stórsigur þegar liðið mætti Skautafélagi Reykjavíkur í Reykjavíkurslag í þriðju umferð Íslandsmótsins í íshokkí karla í Skautahöll Reykjavíkur í kvöld.
Brynjar Bergmann skoraði þrjú mörk fyrir Björninn og Andri Már Helgason skoraði tvö mörk fyrir liðið. Jón Árnason, Emunds Induss og Ingþór Árnason skoruðu sitt markið hver fyrir Björninn. Sölvi Atlason og Kári Guðlaugsson skoruðu aftur á móti mörk Skautafélags Reykjavíkur.
Björninn hefur nú borið sigur úr býtum í tveimur af fyrstu þremur leikjum liðsins í deildinni. Skautafélag Reykjavíkur hefur hins vegar borið sigurorð í einum af fyrstu þremur leikjum sínum og tapað í tveimur þeirra.