Spænskur miðjumaður til Þórsara

Nacho Gil skrifar undir samninginn við Þórsara.
Nacho Gil skrifar undir samninginn við Þórsara. Ljósmynd/Þór Akureyri.

Spænski miðjumaðurinn Nacho Gil er genginn í raðir Þór á Akureyri og mun leika með liðinu í Inkasso-deildinni í sumar. Frá þessu er greint á heimasíðu Þórsara.

Gil er 25 ára gamall sem kemur til Þórsara frá Cd Mostoles URJC. Hann var til skoðunar hjá Þórsurum í æfingaferð félagsins á Spáni á dögunum og í kjölfarið var ákveðið að semja við leikmanninn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert