Eistneska íshokkífélagið Tartu Välk vann yfirburðasigur, 8:0, á Skautafélagi Akureyrar er liðin mættust í Evrópukeppni félagsliða karla í íshokkí í borginni Sófíu í Búlgaríu í dag.
Eistarnir frá Tartu unnu fyrstu lotu 1:0, aðra lotu 2:0 og þriðju og síðustu lotu 5:0.
SA er því úr leik í keppninni og raunar Tartu Välk sömuleiðis þar sem aðeins efsta liðið, KHL Sisak frá Króatíu, fer áfram.