Peter Öqvist, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í körfuknattleik karla, hefur verið ráðinn þjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins LF Basket í Luleå. Öqvist hætti fyrir skemmstu sem þjálfari Sundsvall Dragons eftir að liðið féll úr keppni í 8-liða úrslitum um meistaratitilinn í Svíþjóð.
Öqvist hafði þjálfað Sundsvall frá árinu 2008 og góðum árangri og m.a. gert það að sænskum meisturum 2009 og 2011. Þrír íslenskir körfuknattleiksmenn léku undir stjórn á síðustu leiktíð hjá Sundsvall, Hlynur Bæringsson, Jakob Örn Sigurðarson og Ægir Þór Steinarsson.
Öqvist sagði einnig lausu starfi sínu sem landsliðsþjálfari Íslands snemma árinu.
LF Basket hafnaði í sjöunda sæti í deildinni og hyggur á uppbyggingu á næst árum undir stjórn Öqvists.