Hið sterka lið Oklahoma Thunder er í geysilegum vandræðum með mannskapinn hjá sér í upphafi
keppnistímabilsins í NBA-körfuboltanum en í nótt meiddist Russell Westbrook á hendi.
Stórstjarnan Kevin Durant verður ekkert með næstu sex til átta vikurnar og mikið mæddi á Westbrook í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í vikunni. Westbrook meiddist á hægri hönd og eru meiðslin ekki talin verulega alvarleg en þau verða skoðuð nánar í dag.
Þá eru sex leikmenn Oklahoma ekki leikfærir vegna meiðsla en á meðal þeirra er einnig Reggie Jackson.