Hin bandaríska Chelsie Schweers leikur ekki með Stjörnunni gegn Keflavík í kvöld vegna handarbrots.
Leikbrot greinir frá því að um brot í skothöndinni sé að ræða og er gert ráð fyrir því að 6-8 vikur taki fyrir Schweers að ná fullum bati.
Hefur hún verið mjög atkvæðamikil á leiktíðinni fyrir Stjörnuna og spurning hvernig Garðbæingar bregðast við þessari stöðu.