Árlegt jólamót ÍR og Nettó í körfubolta fór fram um helgina í íþróttahúsi Seljaskóla, Hertz-hellinum. Tæplega 800 börn á aldrinum 6-11 ára mættu til leiks en í ár voru alls 167 lið skráð til keppni.
<br/><br/>Dagskrá helgarinnar var að vonum þétt en ÍR-ingar telja að um 2.000 manns hafi lagt leið sína í Hertz-hellinn á laugardag og sunnudag. Spilað var frá morgni til kvölds alla helgina.
<br/><br/>Myndirnar í rammanum hér að ofan koma frá ÍR og voru teknar á mótinu.