Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Valencia sigruðu þýska liðið Oldenburg, 77:62, í Evrópubikarnum í körfuknattleik í kvöld.
Þrátt fyrir þetta er Valencia úr leik en Oldenburg var komið áfram fyrir leiki kvöldsins. Franska liðið Limoges CSP sigraði PAOK frá Grikklandi, 72:52, og komst áfram á kostnað Jóns og félaga.
Jón Arnór lék í rúmar 12 mínútur í leiknum, skoraði eitt stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu á þeim tíma.
Valencia var með undirtökin frá byrjun í kvöld en staðan að loknum fyrri hálfleik var 40:35 fyrir Valencia. Þeir gerðu svo út um leikinn í þriðja leikhluta sem þeir unnu með tólf stiga mun og úrslitin þar með ráðin.