Körfuknattleiksmaðurinn efnilegi Dagur Kár Jónsson hefur skrifað undir samning við lið Grindavíkur og snýr því heim úr háskólaboltanum þar sem hann hefur verið á mála hjá St. Francis í rúmt ár.
Dagur er uppalinn í Stjörnunni en fór síðasta vetur út til Bandaríkjanna en snýr nú heim þar sem hann sagði við karfan.is að hlutverk sitt í liðinu hefði ekki þróast í rétta átt.
Dagur Kár var með rúm 17 stig að meðaltali í leik fyrir Stjörnuna þegar hann lék hér síðast veturinn 2014-2015.