Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, var magnaður er Charleville sigraði Vichy-Clermont 94:80 í frönsku B-deildinni í kvöld. Martin var stigahæsti maður vallarins.
Charleville hefur byrjað leiktíðina af krafti en liðið var með fimm sigra fyrir leikinn í kvöld og hélt áfram á sömu braut í kvöld.
Martin Hermannsson var með 26 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar í kvöld en enginn var stigahærri en hann í kvöld.
Hann kom til félagsins í sumar eftir að hafa spilað í háskolaboltanum í Bandaríkjunum en liðið er nú í 2. sæti frönsku B-deildarinnar eftir leikinn í kvöld.