Tveir leikmenn deildarmeistara Snæfells í körfuknattleik eru barnshafandi. Þetta eru landsliðskonan Gunnhildur Gunnarsdóttir og Helga Hjördís Björgvinsdóttir.
Karfan.is greinir frá þessu. Gunnhildur á von á sér í október og mun því ekki vera með landsliðinu í komandi verkefnum. Hún sagði við karfan.is að hún vonist til þess að koma sterk til baka á nýju ári.
Helga Hjördís gengur með sitt annað barn, en hún spilaði 35 leiki með Snæfelli í vetur og var með um þrjú stig að meðaltali í leik.