Utah Jazz tryggði sér síðasta sætið í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta karla með 104:101-sigri sínum gegn Los Angeles Clippers í oddaleik liðanna í kvöld.
Utah Jazz mætir Golden State Warriors, ríkjandi meisturum NBA-deildarinnar í undanúrslitum Vesturdeildarinnar.