Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður íslenska U20 ára landsliðsins í körfuknattleik, hefur vakið mikla athygli með liðinu í A-deild Evrópumótsins á Krít síðustu daga.
Ísland komst þar í átta liða úrslit, tryggði sér með því áframhaldandi sæti í A-deildinni og leikur um 5.-8. sætið um helgina.
Í þessari færslu á Twitter er bent á að Tryggvi sé í fremstu röð í fimm tölfræðiflokkum á mótinu og birt myndskeið af stórbrotnum varnartilþrifum hans, eins og sjá má hér fyrir neðan:
7'1 Tryggvi Hlinason in 5 GP @FIBA Europe A U20 Tournament with #Iceland
— DraftExpressContent (@DXContent) July 21, 2017
14.4 PTS | 12.8 REBS | 3 BLKS | 60.4% FG%
33.4 PER (9th at event) pic.twitter.com/wScgDCI5hH