Haukur Helgi Pálsson og félagar hans hjá Cholet fara illa af stað í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta karla Haukur Helgi skoraði 11 stig og tók fráköst þegar Cholet tapaði, 80:77, fyrir Nanterra í fimmtu umferð deildarinnar í kvöld.
Cholet hefur einungis haft betur í einum af fyrstu fimm deildarleikjum liðsins á yfirstandandi leitkíð er jafnt fjórum liðunum í sætunum fyrir ofan neðsta sæti deildarinnar.
Haukur Helgi hefur hins vegar heilt yfir leikið nokkuð vel fyrir Cholet það sem af er leiktíðar. Haukur Helgi er í fimmta til sjötta sæti á listanum yfir stigahæstu leikmenn Cholet í deildinni á leiktíðinni.