Helgi Már Magnússon mun ekki klára úrslitarimmu KR og Tindastóls á Íslandsmótinu í körfubolta þar sem hann er farinn aftur til Bandaríkjanna vegna anna í vinnu.
Helgi kom í lið KR í undanúrslitunum á móti Haukum og stóð sig með miklum ágætum, þrátt fyrir að hafa hætt í körfubolta árið 2016.
Helgi skoraði sjö stig, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu að meðaltali á 16 mínútum í þeim sex leikjum sem hann spilaði í úrslitakeppninni. Þriðji leikur einvígisins er annað kvöld á Sauðárkróki. Karfan.is greindi fyrst frá.