Körfuboltakonan Birna Valgerður Benonýsdóttir hefur samið við Arizona-háskólann og mun hún halda til Bandaríkjanna á næsta ári. Hún leikur með Keflavík á komandi tímabili áður en hún fer út.
Birna hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Keflavíkur sem varð Íslands- og bikarmeistari í fyrra og bikarmeistari í ár. Hún er aðeins 17 ára og skoraði 9,1 stig og tók 3,5 fráköst að meðaltali á síðustu leiktíð.
Lið skólans ber nafnið Arizona Wildcats og spilar það í Pac-12 deildinni, sem er mjög sterk. Karfan.is greindi frá.