Íslenska stúlknalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði fjórða leik sínum í B-deild Evrópumótsins í körfubolta í Svartfjallalandi í dag, 51:37, gegn Bretlandi.
Afar lítið var skorað í leiknum og tókst íslensku stelpunum ekki að rjúfa tíu stiga múrinn í tveimur leikhlutum. Eva María Davíðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með tíu stig.
Ísland hefur nú tapað öllum fjórum leikjum sínum í A-riðli og mætir á morgun liði Makedóníu í lokaleik riðilsins. Sá leikur verður um 5. sæti riðilsins en þar situr lið Makedóníu núna en Ísland er í 6. og neðsta sætinu. Það er því ljóst að íslensku stelpurnar fara í umspil og keppa um 17.-23. sæti.