Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, var stigahæstur og með flest framlagsstig leikmanna Nanterre í kvöld þegar liðið sótti Boulazac heim í frönsku A-deildinni.
Haukur skoraði 18 stig, tók 3 fráköst og átti eina stoðsendingu fyrir Nanterre sem mátti sætta sig við ósigur, 83:79. Hann spilaði í 24 mínútur.
Lið hans hefur unnið tvo af fyrstu fimm leikjum sínum á tímabilinu og er í 13. sæti af 18 liðum í deildinni.