Tap gegn toppliðinu

Dagur Kár Jónsson skoraði fjögur stig gegn toppliðinu í Austurríki …
Dagur Kár Jónsson skoraði fjögur stig gegn toppliðinu í Austurríki í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Dagur Kár Jónsson skoraði fjögur stig, tók 2 fráköst og gaf eina stoðsendingu þegar lið hans Flyers Wels tapaði á útivelli með átján stigum fyrir toppliði Oberwart Gunners í austurrísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag en leiknum lauk með 78:60-sigri Oberwart Gunners.

Wels leiddi eftir fyrsta leikhluta en Oberwart Gunners sýndi mátt sinn og styrk í öðrum leikhluta og staðan í hálfleik 34:29. Að þriðja leikhluta loknum var munurinn á liðunum áfram fimm stig en Oberwart Gunners vann fjórða leikhluta með 13 stigum og þar fór leikurinn.

Flyers Wels er í áttunda sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar með 14 stig eftir fyrstu nítján leiki sína en Dagur Kár hefur spilað vel fyrir liðið á þessari leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert