Haukur Helgi Pálsson og félagar hans í franska liðinu Nanterre hrósuðu sigri gegn svissneska meistaraliðinu Fribourg á útivelli, 92:81, í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik í kvöld.
Haukur Helgi skoraði 10 stig, tók 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu á þeim 25 mínútum sem hann lék í leiknum.
Nanterre er í fimmta sætinu í B-riðli Meistaradeildarinnar með 19 stig en Fribourg er í sjöunda sætinu með 15 stig.