Ægir Þór og félagar náðu forystu

Ægir Þór Steinarsson í leik á móti Stjörnunni í úrslitakeppninni.
Ægir Þór Steinarsson í leik á móti Stjörnunni í úrslitakeppninni. mbl.is/Árni Sæberg

Ægir Þór Steinarsson og félagar hans í Regatas eru komnir í 2:1 gegn San Martin í 16-liða úrslitum um argentínska meistaratitilinn í körfuknattleik eftir sigur í þriðju rimmu liðanna í nótt, 89:85 á útivelli.

Ægir Þór lék í rúmar 20 mínútur og skoraði 4 stig, tók 2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar í leiknum.

Regatas var yfir í hálfleik 49:42. San Martin vann þriðja leikhlutann með sex stigum en Regatas náði að innbyrða sigurinn með því að vinna lokaleikhlutann með þremur stigum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert