Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í körfuknattleik og leikmaður Hauka í úrvalsdeildinni, vonast til þess að snúa aftur á völlinn á yfirstandandi keppnistímabili.
Helena, sem er 34 ára gömul, hefur verið að glíma við hnémeiðsli og hefur aðeins komið við sögu í einum deildarleik á tímabilinu.
„Mér líður vel í hnénu í dag og ég held í vonina um að ég geti spilað á þessu tímabili,“ sagði Helena meðal annars í Dagmálum Morgunblaðsins.