Vísitala launa hækkaði um 1,5%

Vísitala launa hækkaði um 1,5% á fjórða ársfjórðungi frá fyrri ársfjórðungi.  Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,8% á sama tímabili og vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn um 0,8%.

Árshækkun vísitölu launa var 8,4% á fjórða ársfjórðungi 2007, 9,2% á almennum vinnumarkaði og 6,7% hjá opinberum starfsmönnum. 

Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest hjá sérfræðingum, 2,3% en minnst hjá stjórnendum, 1,1%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá fjórða ársfjórðungi 2006 eða um 12,4% en regluleg laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 7,8%, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.


Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J), 2,4% en minnst var hækkunin í samgöngum og flutningum (I), 1,2%.  Frá fjórða ársfjórðungi 2006 hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) mest eða um 15,1% en minnst var hækkunin í iðnaði (D), 6,8%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK