Ítreka kröfu um endurgreiðslu

Toll­kvót­arn­ir eru komn­ir til vegna þess að ís­lensk­um stjórn­völd­um ber …
Toll­kvót­arn­ir eru komn­ir til vegna þess að ís­lensk­um stjórn­völd­um ber að heim­ila toll­frjáls­an inn­flutn­ing á tak­mörkuðu magni búvara frá ESB-ríkj­um. Gjaldið er lagt á þegar eft­ir­spurn inn­flutn­ings­fyr­ir­tækja er meiri en sem nem­ur toll­kvót­un­um. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Félag atvinnurekenda hefur sent atvinnuvegaráðuneytinu bréf til að ítreka kröfu sína frá því í síðustu viku, um að ráðuneytið endurgreiði innflytjendum búvöru útboðsgjald vegna tollkvóta, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ólögmætt og í andstöðu við stjórnarskrá.

Í tilkynningu frá FA kemur fram að ráðuneytið hafi í engu brugðist við kröfu félagsins eða einstakra innflutningsfyrirtækja um endurgreiðslu hins ólögmæta gjalds. Fyrir liggur að hér er um mikla hagsmuni neytenda að tefla.

Hundraða milljóna króna hagsmunir

„Alls er um hundraða milljóna króna hagsmuni að ræða fyrir íslensk heimili. Eins og fram kom í fyrra bréfi FA munu allar tafir á endurgreiðslu óhjákvæmilega valda neytendum frekara fjárhagslegu tjóni. Það væri ekki úr vegi að ráðuneytið skýrði að minnsta kosti fyrir neytendum hvort og þá hvers vegna það hyggist af eindregnum ásetningi stuðla að slíku tjóni með því að aðhafast ekkert í málinu,“ segir í ítrekunarbréfinu.

„Félag atvinnurekenda ítrekar þá afstöðu að ráðuneytinu beri að endurgreiða innflutningsfyrirtækjum öll þau útboðsgjöld sem þau hafa greitt fyrir ónýttar innflutningsheimildir. Jafnframt er ítrekuð sú krafa að þessi endurgreiðsla fari tafarlaust fram til að lágmarka tjón neytenda.“

Frétt mbl.is: Vilja að útboðsgjaldið verði endurgreitt

Frétt mbl.is: Verð gæti lækkað um tugi prósenta

Frétt mbl.is: Hundraða milljóna tjón neytenda

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK