Breska verslunarkeðjan Debenhams hefur neyðst til að segja upp 2.500 starfsmönnum vegna kórónuveirufaraldursins. í tilkynningu frá Debenhams kemur fram að margar verslunareigendur hafi þurft að taka ákvörðun um að segja upp fólki undanfarið og allt verði gert til þess að reyna að tryggja framtíð Debenhams. Baugur átti á sínum tíma stóran hlut í breska vöruhúsinu.
Á sama tíma sé langt í land þar sem efnahagslegar aðstæður séu mjög erfiðar í rekstri fyrirtækja í Bretlandi og víðar.
Debenhams var forðað frá gjaldþroti í apríl eftir að fyrirtækið náði að semja við lánadrottna. Alls hafa tapast 730 þúsund störf í Bretlandi frá því í mars.