MAX-vélar mega fljúga í Evrópu í næstu viku

Boeing 737 MAX-vél á flugi.
Boeing 737 MAX-vél á flugi. AFP

Flugöryggismálastofnun Evrópusambandsins, EASA, ætlar að veita leyfi fyrir því að flugvélar Boeing af tegundinni 737 MAX megi fljúga á nýjan leik í næstu viku, 22 mánuðum eftir að þær voru kyrrsettar vegna tveggja mannskæðra slysa.

„Hvað okkur varðar getur MAX byrjað að fljúga aftur í næstu viku“ eftir að gefnar hafa verið út leiðbeiningar, sagði Patrick Ky, yfirmaður EASA.

Hann bætti við að fjórar helstu kröfur stofnunarinnar hafi verið uppfylltar.

MAX-vélarnar voru kyrrsettar í mars 2019 eftir tvö slys þar sem 346 manns fórust. Fyrst hrapaði flugvél Lion Air til jarðar árið 2018 í Indónesíu og árið eftir vél Ethiopian Airlines.

Grænt ljós hef­ur þegar verið gefið í Banda­ríkj­un­um og í Bras­il­íu á að vél­arn­ar fari í loftið. Kanadísk yfirvöld munu líklega gera slíkt hið sama síðar í þessari viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK