Par í Bandaríkjunum vaknaði einn morguninn og fann nakinn mann að stunda sjálfsfróun inni í fataskáp á heimilinu.
Unga parið ákvað að leita að nokkrum hlutum sem höfðu týnst þennan morguninn og tóku eftir að skáphurðin var hálfopin. Þau gáðu inn í skápinn og sáu þá hinn 21 árs gamla Nicholas Buekea að stunda sjálfsfróun.
Buekea stökk upp er þau fundu hann og hljóp út en náðist stuttu seinna og var handtekinn. Hann gaf engar skýringar á athæfi sínu.