Charles Kane breytti sér í konu en vildi ekki vera Samantha svo hann breytti sér aftur í karlmann. Nú er hann á leið upp að altarinu.
Charles er fæddur sem karlmaðurinn Sam Hashimi en hann eignaðist tvö börn og gifti sig áður en hann ákvað að gangast undir kynskiptiaðgerð árið 1987. Hashimi varð þá konan Samantha Kane.
Kane eyddi milljónum króna í að gera sig eins ómótstæðilega karlmönnum með allskonar lýtaaðgerðum og var svo kvenleg að hún trúlofaði sig í stuttan tíma.
Árið 2004 áttaði Kane sig á því að hafa gert hræðileg mistök og vildi breyta aftur um kyn. Kane gekkst því undir nokkrar aðgerðir til að verða aftur karlmaður.