Miley Cyrus er nokkuð upptekin við að eyðileggja Disney-ímyndina sem hefur loðað við hana allt frá dögum Hönnu Montana. Líkt og Britney Spears, Janet Jackson og svo margar fleiri veit hún að ekkert tuskar góðu-stúlku-ímyndina jafn vel til og kynferðislegir tilburðir í beinni útsendingu.
Hér að neðan má sjá Miley Cyrus tvörka við Robin Thicke, grípa um klofið á sér og staulast um á húðlituðu bikiníi með tunguna úti við hinn vafasama sumarsmell „Blurred Lines“.
Gera má því skóna að Cyrus hafi tekist ætlunarverk sitt því fjölmiðlar ytra keppast við að fjalla um atriðið og afleiðingar þess.
Hér má sjá samantekt yfir 15 skrítnustu augnablikin í atriðinu en Monitor er ekki frá því að þau hafi verið fleiri.