Nú gengur manna á milli á internetinu ótrúlegt myndband sem sýnir Guillaume Néry, heimsmeistara í köfun, gera svolítið magnað. Í myndbandinu sést hinn franski Néry dýfa sér ofan í „Dean's Blue Hole“ á Bahamaeyjum, sem er dýpsta hyldýpi sjávar en það er rúmir 200 metrar að dýpt. Allt stökkið er tekið upp af kærustu hans, Julie Gautier sem er einnig verðlaunakafari.
Myndbandið, sem má sjá hér að neðan, er ekki fyrir vatnshrædda eða fólk með innilokunarkennd.