Jay Z og Beyoncé eru sögð vera að leggja línurnar að sameiginlegu tónleikaferðalagi. Nýverið hafa þau komið fram sem óvæntir gestir á tónleikum hjá hvort öðru og um helgina tróðu þau upp í sitthvoru lagi með Solange Knowles og Nas.
Ekki hefur verið tilkynnt um samstarfið opinberlega en New York Post hefur þessar upplýsingar eftir ónefndum heimildarmanni. Heimildarmaðurinn segir að parið hyggist ferðast milli 20 íþróttaleikvanga í Bandaríkjunum í sumar en þau luku bæði við tónleikaferðalög um heiminn sitt í hvoru lagi fyrr á árinu.
Beyoncé og Jay Z komu fram í sameiningu á Grammy verðlaunahátíðinni og fluttu smellinn „Drunk in Love“. Uppákoman vakti mikla athygli og bíða aðdáendur parsins væntanlega með slefið niður á höku af tilhugsuninni um sameiginlega tónleika.