Myndbandið hér að neðan var skotið í tilefni B-Classic tónlistarhátíðarinnar sem fram fer í Belgíu. Markmið hátíðarinnar er að kynna klassíska tónlist fyrir nútíma hlustendum og það er óhætt að segja að aðstandendum hátíðarinnar hafi tekist að hugsa út fyrir kassann. Myndbandið sýnir K-pop hópinn Wayeva dansa og twerka á mismunandi stöðum í Suður-Kóreu við sinfóníu tékkneska tónskáldsins Antonín Leopold Dvořák. Samsuða þessa ólíku listforma er vægast sagt stórskemmtileg þó vissulega sé hún furðuleg en sjón er sögu ríkari.