Lífið getur verið átakanlegt, ósanngjarnt, broslegt og svo ótrúlega fallegt. Myndirnar hér að neðan koma frá öllum heimshornum og sýna ótrúlegan fjölbreytileika mannlegrar tilveru.
Allar myndirnar eiga sér sögu og hægt er að lesa um sumar myndanna hér. Staðreyndin er hinsvegar sú að ljósmynd segir meira en þúsund orð og því er um að gera að fletta niður síðuna og skoða myndirnar án fyrirfram gefinna hugmynda um efni þeirra.