Conchita Wurst stal hjörtum Evrópubúa þegar hún kom sá og sigraði með laginu „Rise like a Phoenix“ í úrslitum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Chonchita Wurst er dragpersóna Thomasar Neuwirth sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í austurísku hæfileikakeppninni Starmania.
Thomas kynnti Conchitu ekki til leiks fyrr en fjórum árum síðar en í millitíðinni lenti hann í öðru sæti í keppninni og einnig átti hann stuttan feril með strákasveit. Conchita kom fram á sjónarsviðið í hæfileikakeppninni Die Grosse Chance en hún varð einnig í öðru sæti. Síðar tók hún þátt í forkeppni Austurríkis fyrir Söngvakeppnina en í ár varð hún fyrir valinu sem flytjandi á undan laginu sjálfu.
Hér má sjá Thomas renna í „Amazing Grace“ og „Get the Party Started“ í fyrstu prufunum fyrir Starmania.
Hér má svo sjá Thomas syngja Bondlagið „Goldfinger“ í úrslitaþætti Starmania.