Game of Thrones hefur farið sigurgöngu um heiminn en í Svíþjóð nýtur þátturinn svo mikilla vinsælda að fjöldi nýbakaðra foreldra hafa nefnt börnin sín í höfuðið á persónum þáttarins sakmvæmt vefritinu The Local.
Efst á nafnlalistanum er Arya en frá því í júní 2011 hafa 38 börn fengið nafn yngstu dóttur Ned Stark. Næst vinsælasta Game of Thrones nafnið er Sandor (20), Jaime (12) og Theon (10) auk þess sem fimm börn hafa hlotið nafnið Khaleesei. Í Bandaríkjunum fengu 146 börn nafnið Khaleesei árið 2012 en drekamóðirin er í miklu uppáhaldi hjá aðdáendum þáttarins.
Öllu óvinsælli er hinn illi Joffrey en aðeins tvö sænsk börn hafa fengið það nafn síðustu fjögur árin og það bæði áður en Game of Thrones þættirnir voru fyrst sýndir.