Hljómsveitin Boogie Trouble heldur fyrstu opinberu tónleika sína á höfuðborgarsvæðinu frá síðustu Airwaves-hátíð annað kvöld. Tónleikarnir fara fram á Gauknum og hefjast klukkan 22 en einnig mun þjóðlagapoppsveitin Soffía Björg Band trylla lýðinn.
Miðaverð er 1.000 krónur en hins vegar er aðgangur ókeypis fyrir fólk sem heitir Steinunn. Með því vill Boogie Trouble þakka Steinunnum þessa lands fyrir veittan innblástur við samsetningu sumarsmellsins Steinunn (Sveitin kallar).