Í dag tilkynnti Tayor Swift að næsta breiðskífa hennar sé væntanleg þann 27.október næstkomandi. Breiðskífan mun heita 1989 eftir fæðingarári söngkonunnar og skartar örlítið óljósri polaroid mynd á umslaginu.
Taylor nýtti einnig tækifærið og frumsýndi nýtt myndband við lagið „Shake It Off“ af umræddri plötu. Myndbandið ætti að gleðja marga sem geyma ómælanlega ást á dansi í taktlausum líkömum en einnig þá sem þola ekki Taylor Swift og vantaði nýja ástæðu fyrir því.
Myndbandið er óður til þeirra sem hafa þörf til að dansa en gera það ekkert sérstaklega vel. Swift bregður sér í ýmis hlutverk og tekur ófá slæm dansspor.
En nóg um það, myndbandið má sjá í heild sinni hér að neðan.