Suðurlandsbraut

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Suðurlandsbraut

Kaupa Í körfu

Eik fasteignafélag undirbýr endurbyggingu á tveimur skrifstofuhúsum á Suðurlandsbraut í Reykjavík. Hugmyndir eru um að hækka bæði húsin upp í sex hæðir. Vinningstillagan að húsunum er hér birt í fyrsta sinn í fjölmiðlum. Hún er hönnuð af Arkís arkitektum. Skal tekið fram að þetta eru drög að útliti húsanna. Um er að ræða Suðurlandsbraut 8 og 10 en í báðum húsum eru verslanir á jarðhæð og skrifstofur á efri hæðum. Húsin eru áberandi og snúa til norðurs með útsýni yfir Esjuna og sundin. Verslunin Fálkinn var lengi með aðsetur á Suðurlandsbraut 8 og muna eflaust margir eftir áberandi skilti á þaki hússins. Samningum við leigutaka hefur verið sagt upp og stendur húsið nú að mestu autt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar