Flengir kaupsýslumenn í vinnunni

Adrianna Taylor sérhæfir sig í að flengja fullorðna karlmenn.
Adrianna Taylor sérhæfir sig í að flengja fullorðna karlmenn. Skjáskot af dailymail.co.uk

Hin 26 ára Adrianna Taylor sagði upp starfi sínu sem ritari fyrir þremur árum síðan til þess að leita á ný mið en hún kunni illa við sig í skrifstofustarfinu þar sem vinnutíminn var frá níu til fimm.

Taylor ákvað að skipta um starfsvettvang í von um að þéna meira. Hún ákvað að gerast svokölluð dominatrix en það starf snýst um að veita karlmönnum líkamlegan sársauka en andlega vellíðan. Taylor kveðst þéna um fimm milljónir á ári, þessu greindi hún frá í viðtali við DailyMail.

Taylor kallar sig Mistress Hallie Brookes þegar hún er í vinnunni. Taylor tekur við viðskiptavinum á heimili sitt en hún býr með kærasta sínum. Taylor segir kærastann ávallt vera til staðar á heimilinu til þess að sjá til þess að allt fari sómasamlega fram.

Taylor ákvað að gerast dominatrix stuttu eftir að hún komst að því að henni líkar vel við að vera við stjórnvölinn. „Ég er ríkjandi persónuleiki og mér líkar illa við að taka við skipunum. Níu til fimm vinna hentaði mér ekki. Ég hef alltaf verið heilluð af lífsstíl sem er tabú, ég hef áhuga á því sem gerist bak við luktar dyr.“

Viðskiptavinirnir gjarnan efnaðir og vel menntaðir menn

Taylor kveðst hafa hlotið ákveðna þjálfun áður en hún stofnaði fyrirtæki sitt. „Það gilda ákveðnar reglur í þessu, þú villt auðvitað ekki kæfa einhvern með því að sitja á andliti hans.“

„Ótal kaupsýslumenn koma til mín,“ segir Taylor aðspurð hverskonar viðskiptavini hún fái til sín. „Þeir vilja láta stjórna sér vegna þess að yfirleitt eru það þeir sem stjórna í vinnunni. Þeir vilja láta flengja sig og traðka á sér. Svo koma læknar og lögfræðingar einnig til mín. Stundum vita eiginkonur þeirra af þessu en oftast ekki.“

Taylor segir mennina fá kynferðislega útrás þegar hún meðhöndli þá en hún heldur því fastlega fram að hún fari aldrei yfir strikið. „Ég er ekki að bjóða upp á kynlífsþjónustu. Ég hef aldrei stundað kynlíf með viðskiptavinum mínum og ég mun aldrei gera það. Ég er alltaf fullklædd, ég er oftast í kjól og leggings,“ útskýrir Taylor sem segir kærasta sinn vera sáttan við starfsval hennar.

Adrianna Taylor er svakaleg skvísa.
Adrianna Taylor er svakaleg skvísa. Skjáskot af dailymail.co.uk
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál