Ofurhuginn og fyrirsætan Roberta Mancino lifir ekki beint hefðbundnu lífi en hún fer reglulega í fallhlífarstökk og það gerir hún jafnvel nakin.
Hin ítalska Mancino birtir gjarnan myndir á samskiptamiðlinum Instagram af því sem á daga hennar drífur. Rúmlega 8.400 manns fylgja henni á Instagram til að skoða þær skemmtilegu og spennandi myndir sem hún birtir.
Mancino hefur ekki tölu á því hversu oft hún hefur farið í fallhlífarstökk en hún telur að hún hafi stokkið um 8.000 sinnum, hún hefur meira að segja gert það nakin. „Það er ekki einu sinni skemmtilegt, það er kalt!“ sagði Mancino sem stökk nakin einfaldlega til að breyta til.
„Ef ég myndi fara í fallhlífarstökk á hverjum degi og gera það alveg eins í hvert skipti þá myndi mér leiðast,“ sagði Mancino í viðtali við Esquire.
Áhugasamir geta fylgst með því sem Mancino tekur sér fyrir hendur á Instagram-síðu hennar.