Fyrir 16 árum síðan vann fyrirsætan Ásdís Rán utanlandsferð til Barcelona í sérstakri keppni sem haldin var á skemmtistaðnum Klúbbnum. Ásdís klæddist rauðum sundfötum frá Fila og uppskar svo mikil fagnaðarlæti að hún vann keppnina.
„Það var verið að velja kynþokkafyllstu konu með afar sérstæðum hætti. Þær komu fram í stuttum kjólum frá Eplinu og bikiníum frá Fila og var hávaðamælir notaður á viðbrögð áhorfenda til að skera úr um hvaða sprund var stigahæst,“ sagði sjóvarpsmaðurinn Valgeir Magnússon í viðtali við Morgunblaðið þann 5. júní árið 1999.
Eins og áður sagði sigraði Ásdís með fagnaðarlátum upp á 123 desíbil.