Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er sögð afar upptekin af útlitinu. Hún dáist stanslaust að sjálfri sér í speglinum og tekur um 200 sjálfsmyndir á dag samkvæmt vinum hennar.
Kylie miðar sjálfa sig við systur sínar en þykir hún sjálf vera „fallegust í fjölskyldunni“. „Hégómaskapurinn er farinn úr böndunum,“ sagði heimildamaður tímaritsins America's OK.
„Hún er smátt og smátt að fjarlægjast gömlu vini sína, þeir eru þreyttir á sjálfselskunni í henni. Hún á erfitt með mannleg samskipti. Hún reynir en hún er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni,“ sagði heimildamaðurinn.